EKKI draga umsóknina tilbaka
Contact the author of the petition
Guest#126 Feb 23, 2014, 14:43
Mér finnst að það eigi að klára samningsumræðuna við ESB og leyfa þjóðinni svo að kjósa við hljótum að geta treyst fólkinu í landinu til að ákkveða en ekki bara pólitíkusa
Guest#127 Feb 23, 2014, 14:44
Það er ófrávíkjanleg krafa lýðræðis að ákvarðanir séu byggðar á bestu fáanlegum upplýsingum á hverjum tíma að undangenginni upplýstri rökræðu um allt sem máli skiptir með hagsmuni almennings að leiðarljósi. Sérhver tilraun til þess að koma í veg fyrir slíkt er ekki bara andlýðræðisleg heldur ofbeldi af hálfu valdhafa....gagnvart frjálsum borgurum! Atlaga að skynsemi okkar og frelsi!
Guest#128 Feb 23, 2014, 14:50
Stefnuleysi stjórnvalda til framtíðar er EKKI valkostur.
Guest#129 Feb 23, 2014, 14:51
Þjóðaratkvæði á að vera um málið samkvæmt skýrum fyrirheitum frambjóðenda beggja stjórnarflokkanna í aðdraganda síðustu alþingiskosninga; annað hlýtur að teljast til kosningasvika. Áhugavert er að bera stöðuna hér saman við það sem er að gerast í Úkraínu þar sem almenningur er að losa sig við forseta og valdaklíku umhverfis hann, vegna samskonar svika þeirra í Evrópumálum. Opið frjálst samfélag er ævinlega það sem sérhagsmunaklíkur og ,,olígarkar" óttast mest.
Guest#130 Feb 23, 2014, 14:51
Ég vil fá tækifæri til að meta sjálf kosti og galla. Ég er á þessari stundu hvorki já eða nei varðandi ESB, en ég vil eiga þess kost að taka upplýsta ákvörðun sjálf. Mikill hroki við þjóðina og virðingarleysi í lýðræðisþjóðfélagi.
Guest#131 Feb 23, 2014, 14:52
Komin tími á að stoppa þessa spillingu
Guest#132 Feb 23, 2014, 14:54
Myrkrið er ekki eilíft
Guest#133 Feb 23, 2014, 14:56
Legg til að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin í vor um áframhald viðræðna
Guest#134 Feb 23, 2014, 14:58
Breytingar ekki stöðnun... !!
Guest#135 Feb 23, 2014, 14:58
Það er nóg komið af frekjustjórnmálum á þessu landi. Hefur ekkert með lýðræði að gera. Það á að gefa þjóðinni tækifæri til að segja hug sinn um þetta mikilvægasta hagsmunamál seinni tíma, allar skoðanakannanir hafa sýnt að meirihluti þjóðarinnar vill klára viðræðurnar við ESB og greiða atkvæði um samninginn.
Guest#136 Feb 23, 2014, 14:58
Það er lýðræðislegt og sanngjarnt að þjóðin fái að greiða atkvæði um málið.
Guest#137 Feb 23, 2014, 15:00
Stjórnmálamenn á Íslandi verða að fara að læra að standa og "falla", með sínum orðum og gjörðum, eins og alls staðar í hinum vestræna heimi.
Guest#138 Feb 23, 2014, 15:00
Hvet alla til að taka þátt í þessari undirskriftarsöfnun til að tryggja það að þjóðin sjálf fái að ráða niðurstöðu þessa máls.
Guest#139 Feb 23, 2014, 15:01
Grínlaust - þetta snýst ekki um esb eða ekki heldur um að mótmæla einræði og vernda lýðræði.
Guest#140 Feb 23, 2014, 15:02
Ég vil að stjórnmálamenn og aðrir fari að bera "ábyrgð" á orðum sínum og gjörðum, í þessu þjóðfélagi. Ábyrgð felst ekki "bara" í því að fá hærri laun.
Guest#141 Feb 23, 2014, 15:04
.
Guest#142 Feb 23, 2014, 15:05
EKKI draga umsóknina tilbaka
Guest#144 Feb 23, 2014, 15:09
Það er lýðræði að kjósa. Tuddastjórnmál eru ekki lýðræði.
Guest#145 Feb 23, 2014, 15:10
ástæða fyrir minni undirskrift er því ég treysti ekki alþingi til að taka ákvörðun sem á að bera hag þjóðarinnar og almennings í landinu fyrir brjósti, í stað þess að bera hag sjálfs sín og sinnar nánustu.
þetta á ekki að vera flokks barátta heldur barátta fyrir fyrir þjóð sem á að stuðla að jafnrétti ekki bara kynja heldur einnig allra stétta og okkar barna sem erfa land og þjóð.
þetta á ekki að vera flokks barátta heldur barátta fyrir fyrir þjóð sem á að stuðla að jafnrétti ekki bara kynja heldur einnig allra stétta og okkar barna sem erfa land og þjóð.
Guest#146 Feb 23, 2014, 15:11
Ekki draga umsóknina til baka!
Guest#147 Feb 23, 2014, 15:11
er thad framtidin ad faera Island 60 ar aftur i tima.bjorn
Guest#148 Feb 23, 2014, 15:12
Verðum hreinlega að hafa valmöguleika opna. Hrein heimska að brenna allar brýr í mikilmennskubrjálæði. Lesist afhenda landið sérhagsmunahóp.
Guest#149 Feb 23, 2014, 15:16
Ísland er ekki lýðræðisríki lengur!
Guest#150 Feb 23, 2014, 15:17
Þessi ríkisstjórn hefur svikið flest öll loforðin .... hún ætti að segja af sér hið fyrsta !
| This discussion has been closed. |