Petitions.nz

EKKI draga umsóknina tilbaka

Contact the author of the petition

Guest#101 Feb 23, 2014, 14:17
Að afturkalla umsóknina um aðild að ESB er að skella dyrum á framtíðarmöguleika ungs fólks á Íslandi og stöðugleika. Óttinn við aukið Evrópusamstarf er óþarfur og heimskulegur.
Guest#102 Feb 23, 2014, 14:18

Re:

#1: -

Það er greinilegt að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn vilja fara úkraínsku leiðina, fólkið getur alveg boðið sömu aðferð á móti eins og fólkið í Úkraínu sýndi ef þess þarf

This comment has been removed by the person who wrote it.

Guest#104 Feb 23, 2014, 14:20
Það er greinilegt að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn vilja fara úkraínsku leiðina, fólkið getur alveg sýnt þeim hvað verður um einræðisherra ef þeir ætla sér þá leið.
Guest#105 Feb 23, 2014, 14:20
Leyfa þjóðinni að kjósa.
Guest#106 Feb 23, 2014, 14:23
Þjóðaratkvæðagreiðslan á að skipta máli!!!!
Ósáttur sjálfstæðismaður#107 Feb 23, 2014, 14:23

Við fengum að kjósa um IceSave!

Umsókn um aðild að Evrópusambandinu er sýst minna mál en IceSave. Það er andstætt lýðræðinu að fámennur hópur alþingismanna geta neitað þjóðinni um rétt hennar til að taka afstöðu til málsins. Verði þessi þingsályktunartillaga Gunnars Braga samþykkt eru ríkisstjórnarflokkarnir að staðfesta að þeir séu engu skárri en ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. sem freistaði þess að keyra Icesave og fleiri mál í gegn með ofbeldi í krafti þingmeirihluta. Ríkisstjórnarflokkarnir fengu umboð margra einmitt vegna þess að málamiðlun var boðuð um að aðildarumsóknin yrði borin undir þjóðaratkvæði og þingsályktunartillagan er því risastór svik við kjósendur.
Guest#108 Feb 23, 2014, 14:24
Gefum þjóðinni möguleika á að samþykkja samning eða hafna honum að vel athuguðu máli.
Guest#109 Feb 23, 2014, 14:26
Its time to revolt as they do in other countries hopefully we will do so this spring 15-20 thousand people downtown protesting this government and get them out of power they are on the road to destroying this country for the future generations, invest in the people thru education & support. Naive politic's & politicians have ALWAYS been dangerous to all societies
Guest#110 Feb 23, 2014, 14:26
Er öskureið.
Réttlætissinni#111 Feb 23, 2014, 14:26

Réttlæti

Ég skora á þann sem fór svo vasklega fram með þennan undirskriftarlista að senda / afhenda Forseta Íslands, Hr. Ólafi Ragnari Grímssyni afrit af honum til staðfestingar til þess að því sé gætt að farið sé eftir einu og öllu eftir þjóðarviljanum en ekki þingræðis- og framkvædarviljanum sem virðist vera svo í háðvegum hafður :/ ....
Guest#112 Feb 23, 2014, 14:26
8. áratugur síðustu aldar var ekki það stórkostlegur að við höfum áhuga á að fá hann til baka.
Guest#113 Feb 23, 2014, 14:26
Vill bara komast úr moldakofanum!!!
Guest#114 Feb 23, 2014, 14:28
Framtíð Íslands á að byggjast á heiðarleika. Lýðskrumarar, lygarar og svikarar gefinna kosningaloforða mega ALDREI AFTUR komast hér til valda. Við munum aldrei gleyma svikum þínum, Bjarni.
Guest#115 Feb 23, 2014, 14:29
Standið við kosningaloforðin og leyfið þjóðinni að kjósa.
Guest#116 Feb 23, 2014, 14:35

Re: Við fengum að kjósa um IceSave!

#107: Ósáttur sjálfstæðismaður - Við fengum að kjósa um IceSave!

Algjörlega sammála síðasta ræðumanni.

Við sem þjóð eigum ekki að sætta okkur við þröngsýni og skammsýni þessara klíkustjórnmálamanna.

Við eigum að mótmæla þessu og reyna að koma þessu liði frá í næstu kostningum.

Ég hvet alla hægrisinnaða Íslendinga að hugleiða stofnun nýs sjálfstæðisflokks þar sem klíkustjórmál fá ekki þrifist.

kv. Guðmundur

Guest#117 Feb 23, 2014, 14:35

Ég vil alvöru kerfislegar breytingar, ekki það sem lénshérrar sjávarútvegsins og landbúnaðarins eru að bjóða mér uppá.

Guest#118 Feb 23, 2014, 14:36
Stjórnmálamenn verða að treysta þjóðinni, burt séð frá hvort við erum á móti eða með ESB
Guest#119 Feb 23, 2014, 14:38
Fyrir börnin okkar.
Guest#120 Feb 23, 2014, 14:38
Við verðum að sýna okkur sjálfum og þeim sem við stofnum til samræðu við þá kurteisi að klára þetta!
Guest#121 Feb 23, 2014, 14:39
Nú er komið að fólkinu.
Guest#122 Feb 23, 2014, 14:40
Við erum vel menntuð upplýst þjóð sem tekur ekki svona geðræðislegar ákvarðanir fyrir sérhagsmunahópa á kostnað almennings
Guest#123 Feb 23, 2014, 14:41
Skrifa undir af heilum hug þó ég viti að undirskriftin haf engin áhrif á núverandi valdhafa. Forsetinn hefur hinsvegar lagt þá línu að forsenda þess að hann líti á málin sé fjölmennar undirskriftir, málþóf á þingi og helst mótmæli á götum úti. Undirskriftin gæti nýst þannig.
Guest#124 Feb 23, 2014, 14:42
Klára.
Guest#125 Feb 23, 2014, 14:42
Valdið til þjóðarinnar. Ekkert bull.