EKKI draga umsóknina tilbaka
Contact the author of the petition
Guest#177 Feb 23, 2014, 16:32
mesta hagsmunamál almennings, ekki loka á það
Guest#178 Feb 23, 2014, 16:34
Það er ekki stjórnamálamanna að ákaveða að setja vistarband og átthagafjötra á dætur okkar og syni. Það er þjóðarinnar allrar að ráða sinni framtíð.
Guest#179 Feb 23, 2014, 16:35
Það er fullkomið glapræði að draga umsóknina til baka! Þurfum á öllum valkostum að halda!
Guest#180 Feb 23, 2014, 16:38
Krónan er ónýtur gjaldmiðill. Kanna þarf til fullnustu hvort ekki megi taka upp Evru eða tengjast gengi hennar með einhverjum hætti.
Okurvextir eru réttlættir vegna óstöðuleika krónunnar. Verðtrygging er rétlætt á sömu forsendum. – Það að halda í íslenska krónu sem gjaldmiðil, er ávísun á fátækt þeirra sem þiggja laun og skulda í húseignum. -Þeir sem hafa aðgang að fjármagni, sópa til sín ofurhagnaði meðan vinnandi stéttum er fórnað á verðbólgubálinu.
Okurvextir eru réttlættir vegna óstöðuleika krónunnar. Verðtrygging er rétlætt á sömu forsendum. – Það að halda í íslenska krónu sem gjaldmiðil, er ávísun á fátækt þeirra sem þiggja laun og skulda í húseignum. -Þeir sem hafa aðgang að fjármagni, sópa til sín ofurhagnaði meðan vinnandi stéttum er fórnað á verðbólgubálinu.
Guest#181 Feb 23, 2014, 16:40
Að sjálfsögðu ætti að klára samningaviðræðurnar og síðan, þegar við vitum hvernig samningur liggur fyrir, hafa þjóðaratkvæðagreiðslu sem skæri úr um hvort að þessum samningi yrði gengið eða ekki.
Guest#182 Feb 23, 2014, 16:42
Það að fá að ákveða sjálf hvort ég vilji ganga í bandalagið eða ekki er mín ákvörðin,það kallast lýðræði og lýðræði er gott.
Guest#183 Feb 23, 2014, 16:44
Loforð eiga að standa!!!
Guest#184 Feb 23, 2014, 16:48
Plís marr.
Guest#185 Feb 23, 2014, 17:02
Látið nú til ykkar taka !!!
Guest#187 Feb 23, 2014, 17:06
Reynslan í aðildarumsóknum að EU er að meðan á umsóknarferlinu stendur verður meirihluti kjósenda á móti EU en þegar samningur liggur fyrir stóreykst stuðningurinn. Þetta stafar líklega af því að meðan ekki liggur fyrir samningur geta sérhagsmunaöfl skipulagt öflugan hræðsluáróður en þegar umsóknin er komin afsannast mest af áróðrinum og það slær í bakseglin hjá andstæðingum. Svipað gerðist í Icesave málinu á Íslandi þegar landsmenn landsmenn voru hræddir upp úr skónum með Kúbu og Norður-Kóreu útilegumannaríki. Þegar staðreyndirnar lágu fyrir sáu allir blekkinguna.
Guest#188 Feb 23, 2014, 17:06
Hættum að hringla
Guest#189 Feb 23, 2014, 17:07
Tillaga Sigmundar Davíðs og félaga er þess eðlis að draga Íslendinga inn í afdalamennsku og þröngsýni þar sem braskarar með íslensku krónuna að vopni geta fengið frjálsar hendur til áframhaldandi blekkinga og svika!
Guest#190 Feb 23, 2014, 17:07
Af hverju er ríkisstjórnin svo hrædd við Evrópu? Það þarft ekki að vera evrópusinni til að vilja klára umsóknina og kjósa á niðurstaðann....ekkert scary við því.
Guest#192 Feb 23, 2014, 17:11
Ekki draga umsóknina tilbaka
Guest#193 Feb 23, 2014, 17:13
Koma svo!
Guest#194 Feb 23, 2014, 17:21
Gera það sama og í Úkraínu, henda þessu hrokaliði frá völdum strax !!!
Guest#195 Feb 23, 2014, 17:22
Er það ekki þjóðin sem á að hafa síðasta orðið?
Guest#196 Feb 23, 2014, 17:22
Re:
þeir eru ekki hræddir við evrópu heldur komast þeir ekki upp með sömu glæpamenskuna í esb og hér heima ef við göngum inn !!!
Guest#197 Feb 23, 2014, 17:25
horfi ekki á þetta sem umsókn frekar sem könnun og vil svo sjá hvað kemur út úr því.Minn réttur sem Íslendings er að fá að velja eða hafna
Guest#198 Feb 23, 2014, 17:26
Verum skynsöm.
Guest#199 Feb 23, 2014, 17:30
Halda áfram viðræðum, fá niðurstöður úr því og svo á þjóðin að kjósa um það
Sigmundur og Bjarni eiga ekki að ákveða þetta fyrir okkur.
Sigmundur og Bjarni eiga ekki að ákveða þetta fyrir okkur.
Guest#200 Feb 23, 2014, 17:31
Kosningaloforð og misvægi atkvæða í þingkosningum eru ærnar ástæður til að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu með sveitastjórnakosningum í vor.
| This discussion has been closed. |
Sýnum viljan í verki!